Hálka á flugbrautinni en ekkert að flugveðri

Einn var um borð í vélinni að sögn Ragnars og …
Einn var um borð í vélinni að sögn Ragnars og sakaði hann ekki. mbl.is/Árni Sæberg

Búið var að ryðja flugbrautina á Reykjavíkurflugvelli sem flugvélin lenti á áður en henni hlekktist á og hafnaði utan brautar.

Hálka var á flugbrautinni en ekkert var að flugveðri.

Þetta segir Ragnar Guðmundsson, flugvélaverkfræðingur og rannsakandi hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa, í samtali við mbl.is.

Einn um borð en sakaði ekki

Einn var um borð í vélinni að sögn Ragnars og sakaði hann ekki. Að öðru leyti getur hann lítið tjáð sig um atvikið. „Við erum í rauninni bara að skoða þetta og það er ekkert meira sem ég get sagt á þessu stigi.“

Ragnar segir erfitt að segja til um hversu langan tíma tekur að rannsaka atvikið en segir þó að vanalega taki slíkar rannsóknir einhverja mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert