Lögregla hefur til rannsóknar andlát en sá látni er talinn hafa innbyrt falsaðar Xanax-töflur.
Grunur leikur á að töflurnar hafi leitt til andlátsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Virka efnið í Xanax er Alprazolam en fölsuðu pillurnar innihalda þess í stað efnið Flualprazolam.
Þær pillur er lögregla hefur lagt hald á eru gular en útlit Xanax taflna getur verið mismunandi.