Farþegi fæddi barn um borð í flugvél yfir Grænlandi í dag.
Var flugvélinni beint til Íslands í neyðarlendingu og tvær áhafnir sendar á vettvang, ásamt ljósmóður frá HSS þar sem barnið er fyrirburi. Móður og barni heilsast vel.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu Brunavarna Suðurnesja.
Þar segir einnig að flugvélar lendi reglulega á Íslandi vegna óvæntra atvika sem oft eru tengd heilsufari farþega.