Flokkur fólksins auglýsir eftir upplýsingafulltrúa

Ert þú rétta manneskjan í starfið?
Ert þú rétta manneskjan í starfið? mbl.is/Eyþór

Þingflokkur Flokks fólksins leitar nú að upplýsingafulltrúa en flokkurinn auglýsir eftir slíkum á atvinnuvefnum Alfreð.

Auglýsingin birtist nú fyrir skömmu en þar segir að starfið feli í sér kynningu á starfsemi flokksins, fjölmiðlasamskipti, greina- og ræðuskrif, auk þess að skipuleggja og framkvæma viðburði og ferðalög þingmanna. Fólk er hvatt til að sækja um stöðuna óháð flokksaðild eða fyrri þátttöku í stjórnmálum.

Flokkurinn hefur verið í kastljósi fjölmiðla síðustu daga, einkum eftir umfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is um að flokkurinn hafi þegið ríkisstyrki fyrir stjórnmálasamtök þrátt fyrir að vera formlega skráður sem félagasamtök.

Vill biðja skólastjórann afsökunar

Auk þess vakti skómálið svokallaða athygli í gær, þar sem greint var frá því að Inga hefði hringt í skólastjóra Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns síns. Var hún einnig sögð hafa ýjað að því að hún hefði ítök innan lög­reglunnar og minnt á stöðu sína í sam­fé­lag­inu. Inga neitar því þó. 

Í samtali við mbl.is í dag viðurkenndi hún þó að þetta hefðu verið mis­tök. Kvaðst hún vilja biðja skólastjórann afsökunar.

Ekki liggur fyrir hvort þessi starfsauglýsing hafi eitthvað að gera með slæma umfjöllun um flokkinn síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert