Leðurblakan sem hefur verið á ferð og flugi um Laugardal undanfarna daga fannst fyrir utan heimili í Teigunum og var gómuð þar af meindýraeyði Reykjavíkur.
„Hún var við það að drepast þegar hún náðist,“ segir Þorkell Heiðarsson, deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur. „Eiginlega líflaus að mestu leyti.“
Dýrið, sem nú hefur verið svæft, var nær dauða en lífi þegar það fannst.
„Hún var einfaldlega óheppin með veður.“
Þorkell segir enn fremur að rannsaka þurfi þá sjúkdóma sem leðurblakan kann að hafa borið með sér til landsins en dýrin eru þekktir smitberar. Síðan muni Náttúrufræðistofnun greina tegundina.
Lilja Borg, íbúi í húsnæðinu þar sem leðurblakan fannst, birti myndskeið af starfsmanni dýraþjónustunnar veiða leðurblökuna í háf, en dýrið virtist þar hreyfingarlaust og gaddfreðið við vegg.
Á sunnudag var lögregla kölluð út þegar leðurblakan fannst í Laugardalslaug og flaug þar ansi nálægt sundgestum en flúði síðan á brott.
Einnig sást til leðurblöku á flögri við Laugarnesveg nálægt Sundahöfn hinn 13. janúar. Þorkell útilokar ekki að þetta gæti verið önnur leðurblaka.
Dýraþjónustan þarf sjaldan að sinna verkefnum sem varða leðurblökur að sögn Þorkels. Það séu allmörg ár síðan Reykvíkingar fengu slíkan gest.