Myndskeið: Leðurblakan flýgur háskalega nálægt sundgestum

Það kom gestum Laugardalslaugar hressilega á óvart þegar þeir urðu varir við leðurblöku á lágflugi yfir lauginni á sunnudag. Spendýrið hefur verið á ferð og flugi um Laugardalinn síðustu daga. Hún hefur nú verið handsömuð.

„Allt í einu heyri ég gasprað í talstöðina að það sé leðurblaka í lauginni,“ segir Sigurður Jökull Ægisson, starfsmaður Laugardalslaugar, í samtali við mbl.is.

Eins og mbl.is greindi frá síðdegis á sunnudag var lögregla kölluð út vegna leðurblöku. Einnig sást til leðurblöku á flögri við Laugarnesveg hinn 13. janúar. Mögulega var þar sama leðurblaka á ferð enda eru þær ekki margar hér á landi.

Á stærð við tvo hnefa

„Ég sé hana í hnypri við útiklefana að deyja úr kulda,“ heldur Sigurður áfram en honum sýndist dýrið vera á stærð við tvo hnefa.

Samstarfsfélagi Sigurðar greip til þeirra ráða að reyna að klófesta dýrið með háfi á meðan það stóð kyrrt við útiklefann.

„En þegar hann nálgast hana með háfinn tekur hún á flug og byrjar að fljúga lágflugi yfir laugina, eiginlega upp við einn kúnna.“

Sigurður náði lágflugi dýrsins á myndskeiði en þar má sjá leðurblökuna fljúga afar nálægt sundlaugargesti. Gesturinn leyfði atvikinu samt ekki að eyðileggja fyrir sér sundferðina: „Hann hélt svo bara áfram að synda,“ segir Sigurður.

Skömmu síðar flökti leðurblakan aðeins um svæðið og flaug síðan út í borgina. Í kjölfarið var hringt á lögregluna, sem mætti á vettvang, og Matvælastofnun, sem kvaðst þó ekkert geta gert fyrst dýrið hefði þegar flogið á braut.

„Það voru eiginlega allir undrandi á þessu,“ segir Sigurður spurður út í viðbrögð gesta. „Fólki fannst þetta bara mjög skemmtileg upplifun, og fyndið. Það var enginn sem tók illa í þetta.“

Gæti hafa komið með gámi til landsins

Leðurblökur eru þekkt­ir smit­ber­ar og kom­um þeirra til lands­ins hef­ur fjölgað á und­an­förn­um árum.

Mögulega hefur þessi tiltekna leðurblaka komist hingað með gámi, þá líklega hjá Sundahöfn enda sást til slíks spendýrs á flugi fyrr í mánuðinum við Laugarnesveg skammt frá höfninni.

Árið 2015 fund­ust þrjár leður­blök­ur á Sigluf­irði sem höfðu farið með dönsku skipi er sigldi frá Belg­íu.

Fyr­ir tæp­lega tveim­ur árum fannst leður­blaka í Kópa­vogi. Í raun hafa að minnsta kosti átta mis­mun­andi teg­und­ir leður­blakna fund­ist á Íslandi, sam­kvæmt rann­sókn frá ár­inu 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert