Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, verður tilnefndur af flokknum til að gegna formennsku utanríkismálanefndar.
Frá þessu greinir Pawel í færslu á Facebook þar sem fram kemur að ákvörðunin hafi verið upplýst á þingflokksfundi Viðreisnar í gær.
„Það er ábyrgðarmikið hlutverk á þessum umbrotatímum í utanríkis- og varnarmálum sem ég tel mig hafa reynslu til, eftir hartnær áratug af virkri þátttöku í stjórnmálum, í stjórnlagaráði, á Alþingi og í borgarstjórn.
Ég hlakka til að eiga gott samstarf við alla þingmenn, í meirihluta sem minnihluta: með þjóðarhagsmuni Íslands að leiðarljósi, öllum stundum,“ skrifar Pawel í færslu sinni.