Ingibjörg Gunnarsdóttir, næringarfræðingur og aðstoðarrektor vísinda við Háskóla Íslands, býður sig fram í embætti rektors.
Ingibjörg er annar tveggja aðstoðarrektora við skólann en hún tilkynnir um framboðið á Facebook. Jón Atli Benediktsson, núverandi rektor, hyggst ekki sækjast eftir embættinu áfram þegar skipunartíma hans lýkur í júlí.
„Ég tel mig búa yfir ágætis reynslu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni sem starfinu fylgja,“ segir hún en tekur þó fram að hún sé „fullkomlega reynslulaus“ þegar kemur að kosningabaráttu en hlakki til að takast á við óvissuna næstu vikurnar.
Ingibjörg starfaði sem prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild háskólans áður en hún tók við sem aðstoðarrektor.
Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði, hefur einnig boðið sig fram til embættis rektors Háskóla Íslands.
Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild, sækist einnig eftir embættinu.