„Ég held að við verðum að fara að undirbúa okkur undir það að það verði aftur gos,“ segir Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands.
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram og magn þeirrar kviku sem safnast hefur saman undir niðri nálgast nú það magn sem kom upp í síðasta eldgosi.
Veðurstofa Íslands hefur hækkað hættustig á svæðum 4 og 6 við Svartsengi.
Í samtali við mbl.is segir Benedikt erfitt að átta sig á hvort taki að gjósa á næstu dögum eða vikum en að ekkert sé útilokað.
„Það er talsverð óvissa um hvenær þetta er farið að ná mörkum, en við erum komin á þann stað núna að við erum farin að þurfa að gera okkur klár.“
Líkur á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi fara nú vaxandi en að sögn Benedikts verða fyrirboðarnir veikari með hverju gosinu. Haldi sú þróun áfram geti verið að næsta gos geri lítil boð á undan sér.
„Ef það heldur áfram þá gæti orðið erfitt að sjá þegar fyrirvararnir fara í gang. Við höfum yfirleitt séð það með hálftíma til þriggja tíma fyrirvara áður en gos kemur upp. En eins og síðast var þetta mjög veik skjálftavirkni og lítil aflögun.“
Ekki bæti úr skák ef veðurskilyrði eru slæm líkt og er spáð um helgina.
„Það sem við höfum kannski mestar áhyggjur af er ef þetta fer af stað í mjög vondu veðri. Þá verður mjög erfitt að sjá þetta því þá minnkar næmni í okkar kerfi,“ segir Benedikt en bætir við að ekki séu endilega líkur á að eldgos hefjist alveg strax þótt ekkert sé útilokað.
„Reynslan hefur sýnt okkur að það getur gosið hvenær sem er. Stundum gerist það fljótlega og stundum dregst það á langinn. Þannig það er ekkert annað að gera en að vera klár og gera ráð fyrir því hvenær sem er.“