Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að tryggja að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag sem er tekjuskattsskylt.
Í tilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, segir að með ákvörðun ESA sé skuldbinding Íslands staðfest og sé hún því lagalega bindandi.
Undir hagnaðardrifna starfsemi Sorpu fellur meðal annars móttaka og flokkun rusls frá öðrum en heimilum, starfsemi urðunarstöðvarinnar í Álfsnesi og gas- og jarðgerðarstöðin GAJA.
ESA fór þess á leit við íslensk stjórnvöld í nóvember á síðasta ári að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu yrði færð í hlutafélag með það að markmiði að jafna samkeppnisskilyrði og uppfylla ákvæði EES samningsins.
Fram kemur í tilkynningu ESA að Ísland hafi nú formlega samþykkt fyrirhugaðar aðgerðir og skuldbundið sig til þess að koma þeim til framkvæmda að fullu fyrir 1. janúar 2027.
„ESA staðfestir samþykki íslenskra stjórnvalda og eru umrædd úrræði því lagalega bindandi fyrir Ísland. Með því að gera úrræði lagalega bindandi er áframhaldandi ríkisaðstoð sem veitt yrði í bága við framangreind úrræði eftir 1. janúar 2027, talin ný ríkisaðstoð sem kann að vera ósamrýmanleg EES samningnum og háð endurheimtukröfu,“ segir enn fremur í tilkynningunni.