Ók á vegfaranda sem lenti í snjóskafli

Snjóskaflinn tók höggið og vegfarandinn hlaut engin meiðsli.
Snjóskaflinn tók höggið og vegfarandinn hlaut engin meiðsli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bílaborgin Reykjavík hefur leikið gangandi vegfarendur grátt í kuldaveðri dagsins en margt er um umferðarlagabrot í dagbók lögreglu.

Auk þess var fjöldi aðstoðarbeiðna þar sem ölvuðum og heimilislausum var vísað á brott úr stofnunum, stigagöngum, veitingastöðum og verslunarmiðstöðum.

Í miðborginni var ökumaður kærður fyrir að virða ekki biðskyldu og í beinu framhaldi virti hann ekki forgang gangandi vegfarenda sem ætluðu að fara yfir merkta gangbraut.

Höfnuðu utan vegar

Þá var ekið á gangandi vegfaranda í Hlíðahverfi. Vegfarandinn lenti þó í snjóskafli sem tók höggið og slapp hann blessunarlega við meiðsli.

Í yfirliti frá lögreglustöð 4, sem sinnir verkefnum í austurborginni og í Mosfellsbæ, kemur fram að ökumaður hafi verið handtekinn í Grafarvogi þar sem hann var grunaður um ölvunarakstur.

Auk þess þurfti lögreglan á stöð 4 að hjálpa til nokkrum sinnum vegna bifreiða sem höfðu hafnað utan vegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert