Aðalmeðferð í máli foreldra leikskólabarna gegn Kennarasambandi Íslands vegna útfærslu verkfallsaðgerða er lokið. Málið fékk flýtimeðferð og verður úrskurður dómara héraðsdóms kveðinn upp á föstudag klukkan 15.
Alls lögðu kennarar í níu skólum niður störf þann 29. október. Náðu verkföllin til allra skólastiga en einungis var um að ræða ótímabundin verkföll í leikskólum. Aðgerðirnar voru tímabundnar á öðrum skólastigum.
Verkföll á fjórum leikskólum stóðu yfir í fimm vikur, eða þar til deiluaðilar gerðu samkomulag um friðarskyldu í lok nóvember. Verkföllum var þá frestað í tvo mánuði en þau hefjast á ný þann 1. febrúar, semjist ekki fyrir þann tíma.
Á föstudaginn verður skorið úr um hvort verkfallsaðgerðir KÍ séu í raun ólöglegar, eins og foreldrarnir telja, í ljósi þess að þær hafi bitnað á fámennum hópi barna og með því hafi börnum þeirra verið mismunað.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, mætti við aðalmeðferðina en fór fyrr til þess að vera viðstaddur samningafund.
Einnig var Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, mættur við meðferðina en hann gaf ekki kost á viðtali að henni lokinni.
Ekki var einungis tekist á um hvort verkfallsaðgerðir KÍ séu ólöglegar heldur einnig hvort foreldrahópurinn eigi rétt á miskabótum vegna verkfallanna sem munu hefjast á ný á laugardag ef ekki næst að semja fyrir þann tíma.
Mun það þýða að engin starfsemi verður í leikskólunum fjórum þegar mánudag ber að garði þann 3. febrúar.
Um er að ræða Drafnarstein í Reykjavík, Holt í Reykjanesbæ, Ársali á Sauðárkróki og leikskóla Seltjarnarness.