Þrír tálbeituhópar sem tala sig saman

Ungmennin villtu á sér heimildir og þóttust vera 14 ára …
Ungmennin villtu á sér heimildir og þóttust vera 14 ára stúlka. Samsett mynd/Colourbox/AFP

Að minnsta kosti þrír hópar ungmenna hafa stundað það að leiða meinta barnaníðinga í gildru með tálbeituaðgerð og í kjölfarið ganga í skrokk á viðkomandi. Hóparnir eru á mismunandi svæðum á landinu en hafa talað sig saman um aðgerðir sínar.

Samkvæmt heimildum mbl.is eiga öll ungmennin það sameiginlegt að hafa annað hvort sjálf orðið fyrir kynferðisofbeldi sem börn eða þekkja einhver sem brotið hefur verið á.

Einn hópurinn hefur safnað saman netföngum um 300 meintra barnaníðinga, en samkvæmt heimildum mbl.is eru á þessum lista netföng frá ríkisstofnunum og stórfyrirtækjum, sem þó hafa ekki verið sannreynd. Ungmennin segja að á hverjum degi reyni allt að tuttugu fullorðnir einstaklingar að komast í samband við börn í gegnum samskiptaforritið Snapchat.

Árásin þaulskipulögð

Lögreglan á Vesturlandi er með til rannsóknar líkamsárás sem kom upp á Akranesi í desember og tengist slíkri tálbeituaðgerð. Þar réðust fimm ungmenni um tvítugt á rúmlega fimmtugan karlmann við Brekkubæjarskóla, en hann taldi sig vera að fara að hitta 14 ára stúlku. Ungmennin villtu á sér heimildir á Snapchat og komust þannig í samband við manninn.

Myndband af árásinni hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum og hefur lögregla það jafnframt undir höndum. Það mun því liggja nokkuð skýrt fyrir hvað gerðist. Rannsóknin er á lokametrunum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Samkvæmt heimildum mbl.is var árásin mjög hrottaleg og litlu mátti muna að enn verr færi, en maðurinn lá þungt haldi á sjúkrahúsi um tíma.

Árásin virðist hafa verið þaulskipulögð, en ungmennin tóku meðal annars út ljóskastara sem lýstu á svæðið þannig að maðurinn myndi ekki sjá þau. Þá voru þau öll með grímur og gættu þess að skilja ekki eftir sig sönnunargögn. 

Eftir því sem mbl.is kemst næst hefur lögreglan einnig haft afskipti af hinum hópunum og fleiri sambærileg mál munu vera til skoðunar.

Lögbrot að eiga í kynferðislegum samskiptum

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem er lögmaður eins úr tálbeituhópnum á Akranesi, segir ótækt að fólk taki lögin í sínar hendur með þessum hætti, en mikilvægt sé að lögreglan rannsaki gögnin sem ungmennin hafa afhent.

„Það er ákvæði í lögunum um það að ef þú setur þig í samband við barn og ert í kynferðislegum samskiptum, þó þú gerir ekkert, þá er það samt lögbrot,“ bendir hann á.

„Við verðum að horfa á hlutina þannig að ef fimmtugur, sextugur eða áttræður karlmaður er að setja sig í samband við barn sem lýsir því ítrekað yfir að það sé 14 ára, þá eigi viðkomandi að hafa dómgreind til að vita að hann geti ekki talað við þennan einstakling. Hvað þá að fara út í kynferðislegar samræður.“

Lögreglan á Vesturlandi rannsakar hrottalega líkamsárás sem tengist tálbeituaðgerð.
Lögreglan á Vesturlandi rannsakar hrottalega líkamsárás sem tengist tálbeituaðgerð. mbl.is

300 netföng meintra níðinga afhent lögreglu

Samkvæmt því sem ungmennin segja eru allt upp í tuttugu einstaklingar á dag sem setja sig í samband við börn í gegnum Snapchat í kynferðislegum tilgangi. Þau hafa safnað netföngum um 300 meintra níðinga og afhent listann lögreglu. Sævar segir þó erfitt að sannreyna að um rétt netföng sé að ræða og hver sé þar að baki.

„En hvað segir það okkur um það sem er í gangi þarna úti? Börn og unglingar nota Snapchat og þau eru í mismunandi aðstöðu og geta verið viðkvæm. Ég veit ekki hvað getur gerst. Það er hægt að tala þau inn á ýmislegt og þau geta gert ýmislegt og þá er skaðinn skeður,“ segir Sævar.

„Ég er ekki að tala um að fólk eigi að taka lögin í sínar hendur, en við eigum að vera upplýst samfélag og þegar krakkar eða einstaklingar sem brjóta af sér, benda á upplýsingar sem varða önnur brot, þá verðum við að taka það líka alvarlega.“

Fíklar boðið börn í skiptum fyrir efni

Sævar bendir að á almennt sé talið að ekki sé hægt að grundvalla sakfellingu á gögnum sem eru fengin með ólöglegum hætti. Slík gögn megi samt sem áður nota.

„Það er tilefni til rannsóknar á málum ef það kemur ábending, þá á lögreglan að rannsaka það sjálfstætt, það er ekki hægt að segja að það sé ekki búið að skila inn kæru, lögreglan hefur þetta vald til að taka upp mál af sjálfsdáðum,“ útskýrir hann.

„Við viljum ekki búa í samfélagi þar sem það er eitthvað fólk úti í bæ sem tekur lögin í sínar hendur, það gengur ekki. Á móti kemur að það er verið að benda á að þarna eru einstaklingar sem eru hugsanlega að brjóta lög í samskiptum við börn og það þarf eitthvað að taka á því,“ segir Sævar.

Samkvæmt heimildum mbl.is eru þessir meintu níðingar sem ungmennin hafa safnað gögnum um í flestum tilfellum karlmenn. Þó eru einhverjar konur á listanum. Til að mynda eru dæmi um að konur hafi leitast eftir samskiptum við ungar stelpur fyrir mennina sína. Einnig virðast vera dæmi um að fíkniefnaneytendur hafi gagngert reynt að koma börnum sínum í samband við fullorðna menn í skiptum fyrir fíkniefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert