Umdeildir þættir tilnefndir til verðlauna

Sigurður Ingi Þórðarson er betur þekktur sem Siggi hakkari.
Sigurður Ingi Þórðarson er betur þekktur sem Siggi hakkari. mbl.is/Árni Sæberg

Danska heimildaþáttaröðin Hættulegur strákur, sem fjallar um Sigga hakkara, hefur verið tilnefnd til verðlauna á kvikmyndahátíðinni TV Prisen.

Heimildaþættirnir, sem nefnast á frummálinu „Siggi - drengen der blev FBI spion“, fjalla um líf Sigurðar Þórðarsonar, störf hans fyrir lekaveituna WikiLeaks og kynferðisglæpi hans gagnvart ungum drengjum.

Siggi starfaði um hríð í innsta hring Wikileaks og var þar hægri hönd Julians Assange.

Þættirnir mættu einhverri gagnrýni á Íslandi – ekki síst frá aðstandendum fórnarlamba Sigga, sem sögðu Stöð 2 sýna dómgreindarleysi og jafnvel siðleysi við að birta þættina, eins og foreldrar Bergs Snæs Rúnarsonar lýstu því en hann fyrirfór sér aðeins 19 ára eftir að hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu Sigurðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert