Vill endurmeta átta virkjanakosti

Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og …
Jökulsá á Fjöllum, Geysir, Kerlingarfjöll, Brennisteinsfjöll, Gjástykki, Hólmsá, Jökulfall og Hvítá, og Tungnaá voru öll friðlýst á ólögmætan hátt á árunum 2019-2021. mbl.is/Árni Sæberg

Umhverfisráðherra vill að átta virkjunarkostir sem höfðu verið friðlýstir á ólögmætan hátt verði aftur teknir til mats í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta sé gert til þess að verndarsvæði þeirra verði afmörkuð með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir.

Síðasta mars ógilti Hæstiréttur friðlýsingu á Jökulsá á Fjöllum, sem Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son hafði friðlýs­t árið 2019 þegar hann var um­hverf­is- og auðlindaráðherra.

Forsenda dómsins var sú að framkvæmd friðlýsingarinnar hefði verið ólögmæt þar sem Alþingi hafði ekki fjallað um afmörkun verndarsvæðisins líkt og lög gera ráð fyrir.

Átta friðlýsingar voru felldar úr gildi

Niðurstaða hæstaréttar hafði þær afleiðingar að afturkalla þurfti á sömu forsendum friðlýsingu sjö annarra svæða, sem öll voru friðlýst í ráðherratíð Guðmundar Inga. Svæðin átta eru:

  • Jökulsá á Fjöllum. Friðlýst 10. ágúst 2019.
  • Geysir. Friðlýst 19. mars 2021. (Geysissvæðið var einnig friðlýst sem náttúruvætti 17. júní 2020)
  • Kerlingarfjöll. Friðlýst 19. mars 2021. (Kerlingarfjöll voru einnig friðlýst sem landslagsverndarsvæði 10. ágúst 2020)
  • Brennisteinsfjöll. Friðlýst 25. apríl 2020.
  • Gjástykki. Friðlýst 1. apríl 2020.
  • Hólmsá. Friðlýst 26. ágúst 2021.
  • Jökulfall og Hvítá. Friðlýst 16. september 2021.
  • Tungnaá. Friðlýst 30. ágúst 2021.

Fer aftur í ferli

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur nú óskað eftir því að verkefnisstjórn rammaáætlunar taki öll þessi átta svæði til endurmats.

Þessir virkjunarkostir voru flokkaðir í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar með þingsályktun í febrúar 2013. Ný áætlun tók aftur á móti gildi í júní 2022 og er þessa virkjunarkosti ekki að finna í þeirri áætlun.

Ráðuneytið segir að kostirnir þurfi því að fara aftur í gegnum ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar og að Alþingi þurfi að flokka þá á ný í verndarflokk áætlunarinnar með skýrt afmörkuðu verndarsvæði til að hægt sé að friðlýsa þá aftur í samræmi við niðurstöðu dómsins.

Þegar framangreindar tillögur verkefnisstjórnar liggja fyrir og hafa borist ráðuneytinu mun Alþingi fá þær til meðferðar á ný. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert