Héraðsdómur Suðurlands hefur vísað Kiðjabergsmálinu frá dómi sökum þess að ákæran þykir ónákvæm.
Héraðssaksóknari hefur kært úrskurð Héraðsdóms Suðurlands til Landsréttar.
Ríkisútvarpið greinir frá.
Karlmaður á fertugsaldri frá Litáen var ákærður fyrir að bana samlanda sínum í sumarhúsi í Kiðjabergi í uppsveitum Árnessýslu í apríl.
Maðurinn var ákærður fyrir stórfellda líkamsárás en ekki manndráp.
Mat saksóknari það sem svo að hinum ákærða hefði ekki endilega verið ljóst að barsmíðarnar myndu leiða til dauða samlanda síns.
Í umfjöllun Ríkisútvarpsins segir að áverkum hins látna sé lýst í ákærunni. Áverkar hafi m.a. verið húðblæðingar við gagnauga, hvirfil og hnakka, umtalsverðar blæðingar á hálsi og víðs vegar á andliti og höfði og miklir og útbreiddir áverkar á heila. Banamein mannsins var heilaáverkinn.
Taldi verjandi mannsins ákæruna óskýra. Tók hann fram að hvorki atburðarás né athöfnum umbjóðanda síns væri lýst og því væri erfitt að taka til varna. Fór því verjandinn fram á að málinu yrði vísað frá dómi.
Héraðsdómur Suðurlands tók undir að í ákærunni væri ekki með fullnægjandi hætti lýst hvernig hinn ákærði hefði valdið þeim áverkum sem leiddu til dauða. Ákæran uppfyllti því ekki skilyrði laga um meðferð sakamála.