Það er víða þæfingsfærð á höfuðborgarsvæðinu sem getur gert ökumönnum lífið leitt í umferðinni.
Langar raðir geta myndast ef ein eða fleiri bifreiðar festast og þá er lítið annað en að sýna þolinmæði og aðstoða náungann ef á þarf að halda.
Eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd sem ljósmyndari mbl.is tók á Breiðholtsbraut nú fyrir hádegi þá dó þessi ökumaður ekki ráðalaus og nýtti snjósköfuna til að losa undan bílnum. Ekki fylgir sögunni hvernig allt saman gekk en vonandi komust allir klakklaust leiðar sinnar að lokum.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir vestanvert landið í dag og að sögn Vegagerðarinnar er svokallað óvissustig á nokkrum leiðum fram á kvöld, s.s. á Hellisheiði, í Þrengslum, á Mosfellsheiði og víðar.
Tekið er fram að vegir geti lokast með stuttum fyrirvara og eru vegfarendur beðnir að kynna sér aðstæður áður en lagt er af stað.
Fram kemur á vef Veðurstofu Íslands að hvassri suðaustanátt með hríðarveðri sé spáð víða um land í dag, en slydda eða rigning verði á láglendi suðvestan til.
Aftur er gert ráð fyrir suðaustan stormi eða jafnvel roki seint á morgun og hláku á öllu landinu.
Þá er búist við órólegu veðri um helgina, með hvassviðri og talsverðri úrkomu.