Ólafur E. Jóhannsson
Uppfærður samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins upp á 311 milljarða króna er ekki hluti af gildandi samgönguáætlun Alþingis til 15 ára, enda var aldrei lögð fram eða samþykkt samgönguáætlun á þingi þar sem gert er ráð fyrir fjárveitingum til hans.
Þetta segir Vilhjálmur Árnason alþingismaður og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar síðasta þings í samtali við Morgunblaðið.
Bendir hann á að inni í svokallaðri lotu 1 í sáttmálanum, frá Hamraborg að Hlemmi og kosta átti 8,2 milljarða, sé Fossvogsbrú, en ekki sé minnst á hana í samgönguáætluninni.
„Orðið Fossvogsbrú kemur þar hvergi fyrir og nú herma fregnir að brúin eigi að kosta jafn mikið og öll lotan sem liggja á frá Hamraborg að Hlemmi,“ segir Vilhjálmur.
„Ég bendi á að lota 1 sem og allar aðrar framkvæmdir uppfærðs samgöngusáttmála, hafa ekki farið í gegnum lögbundið ferli á Alþingi sem fer með löggjafar- og fjárveitingavaldið og ákveður forgangsröðun fjármuna sem ríkið setur í sáttmálann. Þannig er samgöngusáttmálinn í heild sinni því marki brenndur að hafa ekki farið í gegnum lögbundinn feril á Alþingi, þannig að ég lít svo á að ekki er hægt að fara í framkvæmdir sem eru umfram fjárheimildir samgönguáætlunar 2020 – 2024,“ segir Vilhjálmur.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag