Atli Steinn Guðmundsson
„Ökumenn þurftu á aðstoð björgunarsveita að halda í morgun þegar þessi hvellur skall á,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í samtali við mbl.is um erfitt ástand sem hann kveður hafa staðið um tíma í morgun, hvort tveggja á Suðurstrandarvegi og Reykjanesbraut vegna þess illviðris sem þá skall á.
„Það var bæði hált og mjög hvasst sem hafði mest áhrif á tóma flutningabíla sem skrikuðu til og lentu í vandræðum með að komast leiðar sinnar,“ segir upplýsingafulltrúinn frá og bætir því við aðspurður að tugir björgunarsveitarfólks frá öllum björgunarsveitum Suðurnesjanna hafi komið bílstjórum og öðrum nauðstöddum til aðstoðar.
Einhvern tíma kveður Jón Þór hafa tekið að greiða úr málunum þar sem bílar hafi verið fastir víða og átak þurft til að koma umferðinni í sinn farveg á nýjan leik. „Þetta tók smá tíma en það hafðist,“ segir Jón Þór að lokum.
Myndskeiðið sem fylgir fréttinni er runnið undan rifjum Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar.