Gekk fram á snjóflóð í Úlfarsfelli

Vetrarríki í Öskjuhlíð, ekki Úlfarsfelli.
Vetrarríki í Öskjuhlíð, ekki Úlfarsfelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Snjóflóð féll í vesturhlíð Úlfarsfells klukkan 6 í morgun. Þorvaldur V. Þórsson fjallagarpur gekk fram á flóðið.

Flóðið féll úr efstu brekkunni áður en komið er upp í gilið í vesturhlíð fellsins. Lýsir Þorvaldur því þannig að flóðið hafi fallið hægra megin við göngustíginn þegar gengið er upp.

Þá lýsir hann sprungu sem kominn var í snjóinn efst í brekkunni og bendir á að snjórinn gæti farið af stað þar einnig hvenær sem er.

Síðasta flóð skráð 2022

Síðasta skráða snjóflóð féll á Úlfarsfelli í febrúar 2022 og þar á undan í mars 2020. Á vef Veðurstofu Íslands er flóðinu í morgun lýst sem þurru flekahlaupi af stærð 1 eða af minnstu stærð.

Hulda Rós Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofunnar, segir talsvert hafa snjóað á Suðvesturlandi og að svæðisbundin snjóflóðaspá geri ráð fyrir snjóflóðahættu á svæðinu. Líklegt sé að vindflekar myndist í norður og norðvesturhlíðum fjalla með snjókomu í dag.

Segir hún að aðstæður sem þessar spyrji ekki um hæð fjalla heldur meira um bratta hlíðanna og að í hlíðum sem séu brattari en 30 gráður geti flekaflóð fallið.

„Þegar fólk er í fjallgöngum að vetrarlagi þá þarf það að hafa snjóflóðahættu í huga. Snjóflóð geta alveg fallið á Úlfarsfalli og þau falla reglulega á Esjunni þannig að þetta er ekki óþekkt,“ segir Hulda og minnir á að kíkt sé á snjóflóðaspár áður en gengið er til fjalla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert