Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og miðhálendið í dag vegna suðaustan hríðarveðurs.
Á Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendingu taka þær gildi klukkan 10, klukkan 11 á Breiðafirði og 12 á Vestfjörðum.
Það verður vaxandi suðaustanátt og skýjað, 15-23 m/s með morgninum og snjókomu eða slyddu en það verður rigning við sjávarsíðuna. Vindur verður hægari um landið norðaustanvert.
Það hlýnar í veðri og hitinn verður 0-5 síðdegis. Það snýst svo í hægari vestanátt með stöku éljum vestan til í kvöld með kólnandi veðri.
Á morgun hefur verið gefin út gul viðvörun fyrir allt landið en þá gengur í suðaustan 18-25 m/s með rigningu seinni partinn en hægara og þurru veðri austan til fram á kvöld. Hitinn verður 5-10 stig annað kvöld.