Til stendur að lóga Rottweiler-hundi á mánudaginn sem réðst á konu í síðustu viku. Konan axlarbrotnaði í átökunum en hundurinn beit í sundur vöðva og sinar í handlegg konunnar.
Þetta staðfestir Guðríður Friðriksdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, í samtali við blaðamann mbl.is.
„Þetta er auðvitað alveg hræðilegt og sorglegt þegar svona gerist.“
Akureyrarbæ og Matvælastofnun var tilkynnt um málið í kjölfar árásarinnar en málið hefur verið í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.
Þjónustufulltrúi lögreglunnar vildi ekki veita upplýsingar um málið eða verkferla lögreglu í slíkum málum.
Sif Sigurðardóttir, héraðsdýralæknir hjá MAST, segir stofnunina hafa verið upplýsta um málið en skipti sér alla jafna ekki af nema grunur leiki á að hundur hafi bitið frá sér til þess að verjast illri meðferð.
„En það hefur ekki verið gert í þessu máli. Þetta virðist frekar klippt og skorið,“ segir Sif.
Aðspurð segir hún Rottweiler-hunda ekki bannaða og vísar í samþykkt um hundahald í Akureyrarkaupstað.
„Þetta er náttúrulega bara gömul vinnuhundategund.“
Samkvæmt hundasamþykkt Akureyrarbæjar er óheimilt að halda hunda af Pit Bull Terrier, Staffordshire Bull Terrier, Fila Brasileiro, Toso Inu eða Dogo Argentino-tegund.
Auk þess er óheimilt að eiga blendinga af ofangreindum tegundum, blendinga af úlfum og hundum og aðrar tegundir sem hættulegar eða óæskilegar eru að fenginni reynslu eða mati sérfróðra aðila.