Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, mun hefja störf að nýju 1. febrúar eftir tæplega fimm mánaða veikindaleyfi.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir lætur af störfum á sama tíma sem starfandi bæjarstjóri.
Þetta kemur fram á vef Reykjanesbæjar.
„Eins og fram hefur komið greindist Kjartan Már með krabbamein í blöðruhálskirtli í júlí sl. Hann hóf lyfjameðferð strax en í nóvember hófst geislameðferð sem lauk um miðjan desember og hann svaraði vel. Síðan þá hefur Kjartan Már verið að safna kröftum og gengið vel,“ segir í tilkynningunni.