„Ég mun koma með frumvarp, væntanlega strax á fyrsta degi nýs Alþingis, og vonandi getum við fjallað um það og afgreitt á fáum sólarhringum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið, spurður hvernig hann hyggist bregðast við óvissuástandi í orkumálum í kjölfar dóms í héraði sem felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi.
„Ég vona að stjórnarandstaðan verði samvinnuþýð,“ segir hann, en í sl. viku lýstu fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna þriggja yfir stuðningi við setningu bráðabirgðalaga til að höggva á þann hnút sem Hvammsvirkjun er í vegna dómsins.
„Ég geri ráð fyrir að leggja frumvarpið fyrir ríkisstjórn í næstu viku og þá munum við kynna nákvæmlega hver útfærslan verður. Markmiðið er að koma í veg fyrir frekari tafir á Hvammsvirkjun,“ segir Jóhann Páll. Aðalatriðið sé að leiðrétta innleiðingu vatnatilskipunarinnar sem varð virkjuninni að falli í héraðsdómi.
„En að öllum líkindum mun þurfa að taka stærri skref með frekari breytingum á lögum til að koma í veg fyrir frekari tafir,“ segir hann og nefnir að einnig komi til greina að setja sérstök lög um virkjunina. Þó sé heppilegast að nálgast mál af þessu tagi með eins almennum hætti og hægt er til að koma verkefninu áfram. Það sé þó háð því að almenn leið sé í raun fær til að koma í veg fyrir frekari tafir.
Jóhann Páll segir að þessu til viðbótar sé verið að vinna í ráðuneytinu að fleiri frumvörpum um róttækar breytingar til að greiða fyrir orkuöflun. Þar sé um að ræða breytingar á leyfisveitingaferli vegna nýrra virkjana sem væntanlegar séu á vorþingi og rammaáætlun um þá virkjunarkosti sem fengið hafa umfjöllun í tvígang í ferlinu. Þá hefur ráðherra farið þess á leit við verkefnisstjórn rammaáætlunar að átta virkjunarkostir verði teknir til endurmats, svo verndarsvæði þeirra verði afmörkuð með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir.