Landsbankinn spáir vaxtalækkun

Greiningardeild Landsbankans telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taki varfærin næstu …
Greiningardeild Landsbankans telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taki varfærin næstu skref, enda segi í síðustu yfirlýsingu hennar að áfram þurfi að „viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma“. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Greiningardeild Landsbankans spáir 0,5 prósentustiga lækkun stýrivaxta í næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um ákvörðunina 5. febrúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá greiningardeildinni.

4,6% verðbólga í janúar

Verðbólga mældist 4,6% í janúarmánuði og hjaðnaði í takt við spá bankans og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun.

Hægt á íbúðaverðshækkunum

Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf, segir jafnframt í tilkynningunni.

Greiningardeildin telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taki varfærin næstu skref, enda segi í síðustu yfirlýsingu hennar að áfram þurfi að „viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert