Leggur fram innanhústillögu í kjaradeilu kennara

Ástráður leggur fram tillögu í dag og vonast til og …
Ástráður leggur fram tillögu í dag og vonast til og gerir ráð fyrir að eitthvað verði fundað um helgina. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga á fund klukkan 16 í dag þar sem hann mun kynna innanhústillögu sem starfsfólk embættisins hefur sett saman.

Er það tilraun til að koma deiluaðilum út úr þeim vítahring sem þeir hafa verið fastir í síðustu mánuði, en að öllu óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir kennara á ný á mánudag.

„Svo fá aðilar eitthvað ráðrúm til að skoða það og eftir atvikum verða einhver frekari samtöl vona ég,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is. Hann á því alveg eins von á því að fundað verði áfram um helgina.

Verið í nánu samráði síðustu daga

Er þessi tillaga þess eðlis að það væri hægt að fresta verkföllum og halda áfram með samtalið?

„Við kynnum tillöguna í dag, þannig við verðum að bíða með það nákvæmlega hvað hún felur í sér. En allavega er búið að vera í nánu samráði við aðila að finna einhverja leið á undanförnum dögum og það er komið að því að kalla þá saman til þess að fara yfir hvað ég legg til, svo sáum við til hvernig það þróast,“ segir Ástráður.

Líkt og fram hef­ur komið hef­ur lít­ill sem eng­inn fram­gang­ur orðið í viðræðunum frá því að sam­komu­lag um friðarskyldu var gert í lok nóv­em­ber og verk­föll­um frestað.

Deiluaðilar hafa ekki hist á form­leg­um samn­inga­fundi frá því á miðviku­dag­inn í síðustu viku. Þá var reynt til þraut­ar að finna grund­völl til frek­ara sam­tals, án ár­ang­urs.

Sá þá rík­is­sátta­semj­ari ekki til­efni til að boða til frek­ari funda, nema eitt­hvað gæfi til­efni til.

mbl.is/Hari

Verkföll hefjast í 21 skóla á mánudag

Formaður samn­inga­nefnd­ar Sam­bands Íslenskra sveit­ar­fé­laga hef­ur sagt að það þurfi viðhorfs­breyt­ingu af hálfu kenn­ara til að samn­ing­ar ná­ist. Þeir séu fast­ir í launakröf­um sem ekki sé hægt að koma til móts við.

Formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands seg­ir kröfu um jöfn­un launa á milli markaða standa óhaggaða. Grund­vall­ar­atriði sé að staðið sé við sam­komu­lag frá ár­inu 2016. 

Að öllu óbreyttu hefjast verk­fallsaðgerðir á mánu­dag í fjór­tán leik­skól­um og sjö grunn­skól­um. Þá hef­ur Fé­lag fram­halds­skóla­kenn­ara gefið út að farið verði í at­kvæðagreiðslu um ótíma­bund­in verk­föll í nokkr­um fram­halds­skól­um strax í byrj­un fe­brú­ar.

Setur aðgerðir mögulega í uppnám

Aðalmeðferð í máli for­eldra leik­skóla­barna gegn Kenn­ara­sam­bandi Íslands vegna út­færslu verk­fallsaðgerða fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Málið fékk flýtimeðferð og verður úr­sk­urður dóm­ara héraðsdóms kveðinn upp á morgun, föstudag.

Foreldrarnir telja útfærslu verkfallsaðgerða KÍ ekki standast lög, þar sem þær hafa eingöngu bitnað á fámennum hópi barna. Verði niðurstaðan foreldrunum í vil má gera ráð fyrir því að það setji boðaðar verkfallsaðgerðir kennara í uppnám.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert