Rafmagnsverð hækkar verulega milli mánaða

Um er að ræða mestu hækkun á 12 mánaða tímabili …
Um er að ræða mestu hækkun á 12 mánaða tímabili í 13 ár. mbl.is/​Hari

Rafmagnsverð hækkaði um 6,7 prósent milli mánaða eða frá desember í fyrra til janúar á þessu ári samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun.

Er um að ræða mestu hækkun á milli mánaða sem mælst hefur síðan um mitt ár 2010, að fram kemur í tilkynningu á vef Samtaka iðnaðarins.

Rafmagnsverð hafi hækkað um 15,1 prósent á síðustu tólf mánuðum, sem sé mesta hækkun í þrettán ár.

Tólf mánaða hækkunartakturinn hafi verið að aukast undanfarið, þrátt fyrir að verðbólga hafi verið á niðurleið.

Aðgerðaleysi kosti samfélagið mikið

„Samkvæmt nýlegri greiningu SI endurspeglar hækkunin á raforkuverði þá stöðu að raforkuframleiðsla hefur ekki haldið í við vöxt og þróun samfélagsins, þar á meðal fólksfjölgun. Ástæðan fyrir þessu er kyrrstaða í raforkuöflun síðastliðin 10 til 15 ár. Þetta aðgerðaleysi kostar samfélagið mikið, sem birtist nú í hækkun raforkuverðs,“ segir í tilkynningunni.

Þá er bent á að vísbendingar séu um að orkufyrirtæki hafi hækkað verð of hratt, eins og fram hafi komið.

„Skammtímahorfur hafa batnað með betri vatnsbúskap i vetur en langtímahorfur hafa hins vegar versnað með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert