Færð er tekin að spillast á Reykjanesbrautinni og er hún lokuð í átt til Reykjavíkur milli Fitja og Grindavíkurvegar.
Frá þessu greinir lögreglan á Suðurnesjum í færslu á Facebook en þar segir að nú þegar hafi tvö ökutæki runnið út af veginum en engin slys hafi orðið á fólki.
Þá kemur fram að Grindavíkurvegur sé orðinn þungfær og hann sé tímabundinn lokaður í norðurátt vegna ökutækis sem situr fast við Gíghæð.
Uppfært: