Svona er tillaga sáttasemjara: Hafa fram á laugardag

Ástráður í Karphúsinu í dag.
Ástráður í Karphúsinu í dag. mbl.is/Karítas

Ríkissáttasemjari lagði fram innanhústillögu í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga nú fyrir skömmu sem jafngildir kjarasamningi verði hún samþykkt.

Tillagan felur meðal annars í sér að deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með virðismati og verkáætlun til 20 mánaða.

Samninganefndirnar hafa tíma til klukkan 13 á laugardag til að taka afstöðu til tillögunnar.

Samningur til 20 mánaða

Efnislega er um að ræða framhald á vegferð sem ríkissáttasemjari lagði upp með í lok nóvember þegar samninganefndirnar gerðu með sér samkomulag um friðarskyldu til tveggja mánaða.

„Ég legg til að þessi deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með því að aðilar fari í sameiginlega vegferð sem er annars vegar fólgin í virðismati starfa og hins vegar í verkáætlun sem aðilar myndu vinna á næstu 20 mánuðum. Sem fjallar um umhverfi skólanna og mat á öðrum kjörum og önnur þau atriði sem þarf að útkljá til að geta gert farsælan kjarasamning til lengri tíma,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.

Samninganefndir fá tíma til klukkan 13 á laugardag að taka …
Samninganefndir fá tíma til klukkan 13 á laugardag að taka afstöðu til tillögunar. mbl.is/Karítas

Félagsfólk greiðir ekki atkvæði

Þar sem ekki er um miðlunartillögu að ræða fer hún ekki beint í atkvæðagreiðslu hjá félagsfólki Kennarasambands Íslands. 

„Heldur er þetta tillaga til samninganefndanna um það hvernig kjarasamningur í heild sinni gæti litið út. Ef þetta yrði samþykkt myndu aðilar undirrita og þar með væri kominn á kjarasamningur. Þar með myndi komast á friðarskylda. Svo myndi tillagan ganga til atkvæða hjá aðilum,“ útskýrir Ástráður.

Vísar hann þar til atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn hjá félagsfólki KÍ.

Engir formlegir fundir verða haldnir á meðan samninganefndirnar taka afstöðu til tillögunnar, en Ástráður segir deiluaðila þó eflaust eitthvað þurfa að tala saman og ræða við sitt bakland.

Verði tillagan ekki samþykkt hefjast verkfallsaðgerðir kennara á ný á mánudag, en þá leggja kennarar í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum niður störf.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is/Karítas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert