Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Bliku, segir að sér hafi brugðið þegar hann las fréttir í morgun um að fjórir Norðmenn hefðu farist í snjóflóði í frönsku Ölpunum í gær.
„Þetta voru sláandi fréttir,“ segir Einar í samtali við mbl.is. Um það leyti sem snjóflóðið féll í Val-Cenis skíðasvæðinu síðdegis í gær var hann ásamt hópi á að renna sér niður brekkurnar í síðustu ferðinni í sól og blíðu í Val-Thores, sem er í næsta dal, fjórum kílómetrum frá Van-Cenis.
„Það var svakalega mikill snjór og mikið um nýja lausamjöll og snjórinn náði alveg upp að lærum ef menn fóru út fyrir braut. Okkar heimatilbúna kenning er sú að sólin hafi brætt snjóinn í hlíð sem sneri mót suðri og hafi komið snjóflóðinu af stað,“ segir Einar.
Hann segir að ummerki hafi verið víða eftir smá lausaflóð úr bröttustu brekkunum en snjóflóðavarnir hafi ekki verið áberandi og engar leiðir lokaðar vegna snjóflóðahættu.
Staðarmiðlar greindu frá því í gær að flóðhættan á svæðinu hefði verið metin á þriðja stigi af fimm, eftir að 60 sentimetrar af snjó höfðu fallið á undanliðnum tveimur sólarhringum.
Einar segir að snjóflóð í Ölpunum falli við aðrar aðstæður heldur en á Íslandi. Hann segir að flest stóru þurru flekaflóðin hér á landi falli á meðan veður er vont en á skíðasvæðunum í frönsku Ölpunum í gær hafi verið sól og blíða.