Tíðrætt við norrænu kollegana

Leiðtogar fjögurra Norðurlandaþjóða brutu brauðið á sunnudag.
Leiðtogar fjögurra Norðurlandaþjóða brutu brauðið á sunnudag. Statsministeriet/Stine Tidsvilde

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist í samtali við Morgunblaðið eiga í nánum samskiptum við kollega sína á Norðurlöndum, þótt hún hafi ekki verið við kvöldverð norrænna leiðtoga á sunnudag.

Athygli vakti að forsætisráðherra Íslands var ekki meðal borðgesta Mette Frederiksen, en það voru Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs, Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Alexander Stubb Finnlandsforseti til að ræða norræn varnar- og öryggismál.

„Í þessu tilviki kemur samdægurs upp sá möguleiki að hittast í kvöldverði hjá danska forsætisráðherranum. Við fengum meldingu um það upp úr hádegi sama dag og kvöldverðurinn átti að eiga sér stað.“

Var ekki á leið til Póllands

Varstu velkomin ef þú fékkst boðið svona seint og áttir þá eftir að fara yfir hafið?

„Ég á mjög gott samband við norrænu forsætisráðherrana og átti ítarlegt samtal við þá nokkrum dögum áður. Það vildi þannig til að þau voru öll í Kaupmannahöfn, því þau voru á leið til Póllands – það var ég ekki – og þau nýttu tækifærið til að hittast,“ segir Kristrún.

„Þar var fyrst og fremst rætt um öryggi í Eystrasalti. Það hefur komið fram og ég fékk upplýsingar um fundarefnið eftir á. Þannig að við höldum þéttum samskiptum.“

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert