Ólöf Tara Harðardóttir baráttukona er látin. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík aðfaranótt fimmtudagsins 30. janúar.
Ólöf Tara var fædd í Reykjavík 9. mars 1990 og var því á 35. aldursári. Foreldrar hennar eru Tinna Arnardóttir og Hörður Örn Harðarson.
Í tilkynningu frá aðstandendum Ólafar Töru segir að hún hafi verið kraftmikil í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og kom að stofnun tveggja samtaka, Öfga og Vitundar, sem börðust ötullega fyrir breytingum í þágu þolenda ofbeldis. Með Öfgum hlaut Ólöf Tara fjölmörg verðlaun fyrir vinnu sína, þar á meðal frá Mannréttindaskrifstofu Íslands, og hélt mörg erindi í tengslum við kynbundið ofbeldi.
Öfgar ávörpuðu m.a. Sameinuðu þjóðirnar um kvennasáttmálann og funduðu með fulltrúum Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Helstu baráttumál Ólafar Töru voru m.a byrlanir og kvenmorð en hún lagði miklar áherslur í þeim málefnum í sinni vinnu.
Samhliða baráttustörfum sínum rak Ólöf Tara eigið fyrirtæki þar sem hún sinnti þjálfun sem var sérsniðin að þörfum kvenna.
Í tilkynningunni segir einnig:
„Ólöf Tara bjó lengi við ofbeldi í nánu sambandi og mótaði það hana mikið. Hún helgaði síðustu ár lífs síns baráttu gegn ofbeldi og breyttum hugsunarhætti þjóðfélagsins í þeim efnum. En sárin rista djúpt og féll Ólöf Tara fyrir eigin hendi.
Það er einlæg ósk aðstandenda hennar að breytinga megi áfram vænta, að baráttan haldi áfram og skili árangri, að dómaframkvæmd breytist og að samfélagið okkar sameinist um að ofbeldi verði ekki liðið, aldrei! Þörf er á einlægum samskiptum fólks, án upphrópana og hleypidóma. Þörf er á umhyggju, væntumþykju og hluttekningu. Tökum utan um hvert annað í stað þess að taka hvert á öðru.
Aðstandendur minna á að þeir sem eiga um sárt að binda og hafa sjálfsvígshugsanir hafa alltaf stuðning og von. Bent er á Píeta samtökin í síma 552-2218 og hjálparsíma Rauða krossins, 1717.
Þeim sem vilja kynna sér nánar baráttustörf Ólafar Töru með Öfgum, er bent á Instragram.com/ofgarofgar.“
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða hafi samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, eða á netspjalli 1717.is, við hjúkrunarfræðing í netspjalli á heilsuvera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-samtakanna s. 552-2218. Píeta-samtökin bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi bendir landlæknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-samtökunum í síma 552-2218.