Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað að bílaleiga skuli endurgreiða einstaklingi, sem tók bíl á leigu hjá fyrirtækinu, eina milljón króna sem leigutakinn var krafinn um vegna tjóns sem varð á bílnum þegar eldingu laust niður í hann.
Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að einstaklingurinn leigði bifreið af bílaleigunni í júlí árið 2021 en á leigutímanum varð tjón á umræddri leigubifreið þegar hún varð fyrir eldingu. Bílaleigan krafði leigutakann um greiðslu á einni milljón króna sem hann taldi sér skylt að greiða.
Hann sá sig þó um hönd síðar og taldi að sér hefði ekki verið skylt að greiða umrædda kröfu þar sem um hafi verið að ræða óhappatilvik vegna náttúruafla. Lagði hann fram kröfu um endurgreiðslu á síðasta ári og kærði málið til nefndarinnar þegar bílaleigan sýndi engin viðbrögð.
Kærunefndin segir að bílaleigan hafi ekki látið málið til sín taka hjá nefndinni og byggist niðurstaðan því á þeim upplýsingum og gögnum sem leigutakinn lagði fram.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag