Engir skjálftar yfir kvikuganginum

Slæm veður­skil­yrði hafa áhrif á mæla­kerfi Veður­stof­unn­ar og þegar hvasst …
Slæm veður­skil­yrði hafa áhrif á mæla­kerfi Veður­stof­unn­ar og þegar hvasst er og mik­il ofan­koma verður mæl­ing ekki jafn næm og við betri skil­yrði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engir jarðskjálftar hafa mælst yfir kvikuganginum á Sundhnúkagígaröðinni á Reykjanesskaga síðan fjórir litlir skjálftar mældust þar á miðvikudag.

Þetta segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Ekki í Grindavík að nauðsynjalausu

Hættustigi var lýst yfir vegna hættu á eldgosi á Reykjanesskaga í gær, einkum sem forvörn fyrir helgina en búast má við að skyggni verði takmarkað og færð geti spillst í vonskuveðri sem væntanlegt er.

Lög­regl­an á Suður­nesj­um ráðlegg­ur fólki frá því að vera á ferðinni í Grinda­vík að nauðsynja­lausu.

Slæm veðurskilyrði hafa áhrif

Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa klukkan 12 á hádegi í dag. Slæm veður­skil­yrði hafa áhrif á mæla­kerfi Veður­stof­unn­ar og þegar hvasst er og mik­il ofan­koma verður mæl­ing ekki jafn næm og við betri skil­yrði.

Magn kviku sem safn­ast hef­ur und­ir Svartsengi nálg­ast það magn sem fór þaðan í síðasta eld­gosi, sam­kvæmt mæl­ing­um Veður­stofu. Jarðskjálfta­virkni þar hef­ur einnig auk­ist hægt frá gos­lok­um en virkn­in er enn lít­il.

Þró­un­in síðasta árið sýn­ir þó að jarðskjálfta­virkni fyr­ir kviku­hlaup hef­ur dvínað með hverj­um at­b­urði. Því kann að vera að jarðskjálfta­virkni verði ekki mik­il fyr­ir næsta eld­gos. Sjö eldgos hafa orðið á svæðinu síðan 18. desember 2023 en því seinasta lauk í desember á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert