Almannavarnanefnd Vesturlands, ásamt fulltrúum lögreglustjóraembættisins á Vesturlandi, fundaði með sérfræðingum frá Veðurstofu Íslands og almannavörnum ríkislögreglustjóra á dögunum vegna aukinnar jarðskjálftavirkni við Grjótárvatn á Mýrum.
Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar að á fundinum hafi almannavarnarnefnd Vesturlands fengið góða kynningu á stöðu mála og viðbrögð við þeim vangaveltum sem á fulltrúum landshlutans brunnu.
Greiningar á gervitunglagögnum frá 2019 til sumarsins 2024 sýna ekki mælanlega aflögun á yfirborði, en hins vegar segir þar að í ljósi aukinnar virkni virkni og vísbendinga um kvikuinnskot á talsverðu dýpi hafi vöktunarstig á svæðinu verið hækkað.
Almannavarnardeild mun í kjölfar fundarins fara yfir málin með fulltrúum almannavarna og uppfæra viðbragsáætlanir sínar þó svo að ekki sé talin hætta á ferðum, a.m.k. að svo stöddu.
Grjótárvatn er innan eldstöðvakerfis Ljósufjalla á Snæfellsnesi. Töluverð skjálftavirkni hefur verið á þessu svæði og yfir 200 jarðskjálftar hafa mælst í Ljósufjallakerfinu frá áramótum.
Veðurstofa Íslands kom GPS-mæli fyrir í Hítardal í september á síðasta ári til að auka vöktun á Snæfellsnesi. Var það meðal annars gert vegna aukinnar virkni í Ljósufjallakerfinu, en upptök skjálftanna eru á milli tveggja vatna, Grótárvatns og Háleiksvatns.