Mikið hvassviðri er nú á Hellisheiði og lokað hefur verið fyrir umferð í báðar áttir. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þrengslavegur er opinn.
Hvöss suðaustanátt gengur nú yfir landið og fyrr í dag var varað við að búast mætti við snörpum vindhviðum við fjöll á vesturhelmingi landsins.
„Gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi um allt land. Við hvetjum alla þá sem hyggja á langferðir næstu daga að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspám þar sem það verður lægðagangur og erfið akstursskilyrði næstu daga,“ segir á vef Vegagerðarinnar.