Nýtt hlutverk Laugavegshúss

Laugavegur 71. Áberandi hús við eina helstu götu borgarinnar. Mikil …
Laugavegur 71. Áberandi hús við eina helstu götu borgarinnar. Mikil uppbygging hefur verið á næstu lóðum austan hússins. Ein er þó óbyggð. mbl.is/sisi

Við Laugaveg 71 stendur reisulegt hús með átta íbúðum sem leigðar hafa verið til ferðamanna í skammtímaleigu. Nú hyggst eigandinn, Svala apartments ehf., breyta þeim í almennar íbúðir til langtímaleigu og hefur sent fyrirspurn þess efnis til Reykjavíkurborgar.

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa hinn 9. janúar sl. var fyrirspurn Svala apartments ehf. tekin til meðferðar og jafnframt lögð fram umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa.

Húsið á lóð nr. 71 við Laugaveg er fjórlyft hús byggt árið 1978 skv. fasteignaskrá. Fasteignamat þess er tæpar 500 milljónir. Í húsinu er verslun og þjónusta á jarðhæð en hótelíbúðir á efri hæðum. Óskað var eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að fá að breyta þeim í almennar íbúðir.

Íbúðirnar yrðu 5-8 talsins, á bilinu 30-60 fermetrar að stærð fyrir utan þakíbúð, sem yrði 120 fermetrar.

Svala apartmennts hefur ekki útfært þessar breytingar nánar enda vildi fyrirtækið fyrst fá grænt ljós frá borginni. Yfirlýst stefna hennar væri að fjölga minni íbúðum í borginni og fækka útleiguíbúðum til ferðamanna, ekki síst á svæði M1, sem Laugavegur 71 falli undir. Því vonaðist félagið eftir því að fyrirspurnin fengi jákvæðar undirtektir.

Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kemur m.a. fram að Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 leggi sérstaka áherslu á mikilvægi blöndunar íbúða og því sé æskilegt að skoða útfærslu íbúðanna út frá þeim áherslum. Reikna þarf hjóla- og bílastæðabókhald fyrir lóðina.

Huga þarf að dvalarsvæðum

Samkvæmt leiðbeiningum um dvalarsvæði skal hlutfall þeirra vera 20% af heildargólffleti húsnæðis deiliskipulagssvæðis. Dvalarsvæði eru ekki bílastæði, akfærar götur, mjög vindasöm rými eða hávaðasöm svæði. Gera þarf betur grein fyrir útfærslu dvalarsvæða á lóðinni og sólskinstímum á dvalarsvæðum sem skulu vera að lágmarki 5 klst. á milli 09:00-17:00 þann 1. maí.

Útfæra þurfi útfærslu og stærðir íbúða og gæta að birtuskilyrðum inni í íbúðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert