Ósakhæfur þegar slys varð: Greiðir milljónir í bætur

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í málinu í gær.
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í málinu í gær. Ljósmynd/Colourbox

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað ökumann sem var ákærður fyrir brot gegn hegningarlögum með því að hafa orðið valdur að hörðum árekstri sem olli alvarlegu slysi þar sem maðurinn var ósakhæfur á verknaðarstundu. Hann var hins vegar sviptur ökuréttindum auk þess sem manninum var gert að greiða samtals þrjár milljónir í miskabætur.

Maðurinn var aftur á móti sakfelldur fyrir akstur annan dag undir áhrifum fíkniefna.

Slysið varð í september 2023.
Slysið varð í september 2023. Ljósmynd/Colourbox

Ók yfir á rangan vegarhelming

Lögreglustjórinn á Vesturlandi gaf út ákæru á hendur manninum í september 2023. Þar var hann sakaður um líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa árið 2022 ekið bifreið um Snæfellsnesveg til suðurs við Brúarland í Borgarbyggð óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni greindist ketamín 130 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 8,4 ng/ml) og vegna áhrifa deyfandi og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 63 ng/ml).

Hann hafi sömuleiðis án nægilegrar aðgæslu og varúðar ekið yfir á rangan vegarhelming þannig að harður árekstur varð með bifreið mannsins og bifreið sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að ökumaður hennar og farþegi slösuðust.

Ökumaðurinn sem slasaðist fór fram á að honum yrðu dæmdar sex milljónir króna í miskabætur.

Annað mál var síðan sameinað þessu þar sem sami maður var ákærður fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og vegna áhrifa deyfandi lyfja í nóvember 2023.

Fram kemur í dómi héraðsdóms, sem féll í gær, að við upphaf aðalmeðferðar málsins hafi ákæruvaldið fallið frá þeim þætti fyrri ákærunnar að maðurinn hefði verið undir áhrifum ketamíns, enda hafi komið í ljós að manninum hafi verið gefið ketamín eftir aksturinn af umönnunaraðilum.

Maðurinn var ákærður fyrir að aka bifreið undir áhrifum ávana- …
Maðurinn var ákærður fyrir að aka bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvaðst vera ósakhæfur þegar slysið varð

Maðurinn neitaði eindregið sök við aðalmeðferð málsins varðandi áreksturinn á þeim grundvelli að hann hefði þá verið ósakhæfur. Hann gekkst þó við atvikalýsingu að öllu leyti.

Hann játaði sök gagnvart seinni ákærunni.

Fram kemur í dómnum að báðir ökumennirnir hafi verið fastir í bifreiðum sínum eftir slysið og var annar þeirra við að missa meðvitund þegar tilkynning barst til Fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra.

Geðlæknir lýsti því að ákærði hefði verið í miklu örlyndi …
Geðlæknir lýsti því að ákærði hefði verið í miklu örlyndi skömmu fyrir slysið, svefnvana og undir áhrifum fíkniefna og hefði, vegna þessa ástands, verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á þeim tíma sem slysið átti sér stað. Ljósmynd/Colourbox

Var í miklu örlyndi

Geðlæknir var kallaður til að framkvæma geðrannsókn á ákærða til að leggja sérstakt mat á sakhæfi hans. Í matsgerð hans kemur fram að maðurinn hefði langa sögu um alvarlega hvatvísi og erfiðleika við stjórn á skapi og hegðun, auk sögulegra vísbendinga um verulegt örlyndi og hvatvísi. Geðlæknirinn lýsir því að maðurinn hafi verið í miklu örlyndi skömmu fyrir slysið, svefnvana og undir áhrifum fíkniefna og hafi, vegna þessa ástands, verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á þeim tíma sem slysið átti sér stað.

„Matsmaður telur jafnframt að refsing muni ekki bera árangur í tilviki ákærða. Þessi niðurstaða er í samræmi við gögn málsins og þá lýsingu á atvikum sem fram hefur komið. Með hliðsjón af framangreindu er það álit dómsins að ákærði hafi á verknaðarstundu verið í slíku ástandi að hann hafi verið með öllu ófær um að stjórna gerðum sínum, sbr. 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, er hann vann það verk sem honum er gefið að sök og því ósakhæfur. Ber því að sýkna ákærða af kröfu ákæruvaldsins um refsingu í málinu,“ segir í dómi héraðsdóms.

Varð fyrir miklu áfalli og býr við varanlega örorku

Þá segir í dómnum að það sé ljóst að brotaþoli hafi orðið fyrir miklu áfalli vegna þessa atburðar, bæði á sál og líkama. Líkamlegt tjón hafi verið mjög alvarlegt og umfangsmikið og búi tjónþoli við verulega varanlega örorku eftir slysið.

„Af framlögðum gögnum og framburði fyrir dómi má einnig ráða að slysið hafði verulegar og varanlegar afleiðingar fyrir andlega heilsu brotaþola,“ segir héraðsdómur.

Var maðurinn því dæmdur til að greiða brotaþola þrjár milljónir króna í miskabætur.

Honum var jafnframt gert að greiða 410.000 kr. sekt í ríkissjóð og greiða 1,3 milljónir kr. í sakarkostnað. Þá var hann sviptur ökurétti í 27 mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert