Staðfesti tveggja ára dóm fyrir nauðgun

Dómsalur Landsréttar sem í gær staðfesti tveggja ára dóm Héraðsdóms …
Dómsalur Landsréttar sem í gær staðfesti tveggja ára dóm Héraðsdóms Suðurlands frá því í fyrra fyrir nauðgun haustið 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Suðurlands frá 20. febrúar í fyrra þar sem Sigmar Hjörtur Jónsson hafði verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun í september 2021 auk greiðslu tveggja milljóna króna í miskabætur.

Neitaði Sigmar sök staðfastlega við rekstur málsins og krafðist sýknu, en til vara mildustu refsingar.

Málsatvik voru þau að Sigmar og kona, sem á þessum tíma störfuðu saman, höfðu mælt sér mót á göngustíg í nágrenni heimilis hans aðfaranótt 7. september 2021 og var framburður hans stöðugur um þetta atriði hjá lögreglu og fyrir dómi.

Konan, sem misgert var við, var einnig stöðug í sínum framburði um að hún hefði hitt vinnufélaga sinn til að fá hjá honum vökva og viðnámsspólu í rafsígarettu. Lýsti hún atvikum þannig að skömmu eftir að hún hafi hitt Sigmar á göngustígnum hafi liðið yfir hana og hún svo vaknað upp við að búið væri að taka niður um hana buxur og nærbuxur.

Hún hafi staðið upp og maðurinn þá látið hana beygja sig fram yfir grindverk á vettvangi og haft við hana samfarir.

Vitnisburðir sérfræðinga fyrir dómi

Talið var sannað að Sigmar og konan hefðu hist og átt þannig samskipti að töluvert magn erfðaefnis hvors þeirra um sig hafi fundist í lífssýnum er tekin voru daginn eftir. Þannig fannst erfðaefni úr henni í sýnum sem tekin voru úr nærbuxum hans og af getnaðarlim.

Lögðu bæði dómstig þar með til grundvallar að framburður hennar væri rétt lýsing af samskiptunum umrætt sinn.

Fór Landsréttur í forsendum sínum yfir vitnisburð sérfræðings sænskrar réttarrannsóknarstofu og sérfræðings tæknideildar lögreglu auk þess að hlýða á frásagnir málsaðila af andlegri líðan þeirra í kjölfar atviksins. Lýsti Sigmar því hve alvarleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu hans málið hefði haft og studdi framburð sinn læknisvottorði og staðfestingu sálfræðings.

Hætti störfum á vinnustaðnum

Konan greindi frá því hve mjög brot Sigmars hefði truflað líf hennar og gengi hún enn til sálfræðings. Hefði hún enn fremur hætt störfum á vinnustaðnum þar sem þau áður störfuðu bæði. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu, einkum með hliðsjón af þeim lífssýnum sem tekin voru og ítarlega fjallað um á báðum dómsstigum, að meta yrði framburð ákærða ótrúverðugan.

Vísaði millidómsstigið að öðru leyti til forsendna hins áfrýjaða dóms Héraðsdóms Suðurlands um sakfellingu ákærða, refsingu, sakarkostnað og miskabótakröfu brotaþola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert