Varað er við snörpum vindhviðum við fjöll á vesturhelmingi landsins síðdegis í dag þegar hvöss suðaustanátt gengur yfir landið.
Í tilkynningu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar kemur fram að vindhraði geti náð allt að 35 m/s við Hafnarfjall, á Holtavörðuheiði og á Öxnadalsheiði og búist er við hvössum vindi þvert á veg á Reykjanesbraut.
Hvassast verður á milli klukkan 14 og 18 og aftur um tíma í fyrramálið en eftir hádegi á morgun mun draga úr vindi.
Vonskuveðri er spáð á landinu eftir hádegi og hafa verið gefnar út appelsínugular og gular viðvaranir sem taka gildi klukkan 12. Á Breiðafirði, Suðausturlandi og á miðhálendinu verða appelsínugular viðvaranir en gular í öðrum landshlutum.
„Við hvetjum alla þá sem hyggja á langferðir næstu daga að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspám þar sem það verður lægðagangur og erfið akstursskilyrði alla næstu daga,“ segir á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is.