Greiða atkvæði um ótímabundin verkföll í dag

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara.
Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara.

Framhaldsskólakennarar greiða í dag atkvæði um ótímabundin verkföll.

Atkvæðagreiðslan hefst á hádegi og verður niðurstaðan ljós upp úr hádegi á miðvikudag.

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Að því gefnu að verkfallsaðgerðirnar verði samþykktar, og samninganefndir ríkis og Kennarasambands Íslands nái ekki saman á næstu dögum, munu kennarar leggja niður störf í framhaldsskólum 21. febrúar.

Guðjón Hreinn vill ekki gefa upp í hvaða framhaldsskólum kennarar greiða atkvæði um verkfall. Þá vill hann heldur ekki gefa upp hversu margir skólarnir séu.

Fundað alla helgina

Viðræðunefnd Kennarasambands Íslands fundaði ásamt samninganefndum ríkis og sveitarfélaga í Karphúsinu um helgina um innanhússtillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í síðustu viku. Felur hún m.a. í sér að jöfnun launa á milli markaða verði leyst með virðismati á störfum kennara.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti tillöguna en KÍ vildi gera breytingar á ákveðnum skilmálum. Það tókst ekki um helgina og eru nú verkföll í leik- og grunnskólum skollin á.

Telja virðismatsleiðina í tillögunni ótrúverðuga

Í samtali við mbl.is fyrir helgi sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að ríkisstjórnin stæði að fullu með „virðismatsvegferðinni“. Það væri lykilatriði til að hækka laun og kjör kennara umfram aðrar stéttir.

Guðjón segir KÍ ekki mótfallið virðismatsleiðinni, aftur á móti væri virðismatskerfið ekki tilbúið. Sú leið sem kynnt væri í tillögunni væri ófullnægjandi og viðræðunefnd kennara þætti hún ekki nægilega trúverðug til þess að að leggja hana fyrir félagsmenn sína.

Annar fundur hefur ekki verið boðaður enn í Karphúsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert