Ljúka á við sölu Íslandsbanka með gagnsæju og traustu ferli þar sem almenningur hefur forgang.
Svo hljóðar liður í nýkynntri áætlun ríkisstjórnarinnar, þar sem farið er yfir þau mál sem formenn stjórnarflokkanna vilja setja á oddinn á þessu ári.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur áður í samtali við mbl.is sagst stefna að því að klára sölu bankans á vorþingi.
„Þetta er gríðarlega mikilvægt mál þannig að þetta mun fá ítarlega kynningu þegar það verður lagt fram,“ sagði Daði í síðasta mánuði.
Aðspurður sagði hann alla innan ríkisstjórnarinnar hafa verið samstiga um að bankinn yrði seldur.