Veikindi hafa komið upp meðal gesta sem sóttu þorrablót í Þorlákshöfn á laugardagskvöld og eru þau þess eðlis að grunur er um matarborna sýkingu, líkt og á þorrablóti ungmennafélagsins Hvatar í Grímsnes- og Grafningshreppi sem haldið var á föstudag.
Veisluþjónusta Suðurlands sá um veitingar á báðum stöðum, en vert er að taka fram að ekki hefur verið staðfest að veikindin megi rekja til veitinganna sem boðið var upp á.
Freyja Mjöll Magnúsdóttir, sem var í þorrablótsnefndinni, telur að um 20 gestir hafi nú þegar tilkynnt um veikindi, en um 160 gestir sóttu þorrablótið, sem haldið var í Versölum í Þorlákshöfn. Þá hefur mbl.is borist fjöldi ábendinga um veikindi eftir blótið.
Freyja segir að heilbrigðiseftirlitið hafi verið upplýst um málið.
Greint var frá því á mbl.is í gær að tugir gesta sem sóttu þorrablót Hvatar í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi á föstudag hefðu veikst eftir blótið.
Birgir Leó Ólafsson, formaður þorrablótsnefndarinnar, sagði í samtali við mbl.is að fólki hefði verið bent á að skrá hvert tilfelli inni vefsvæðinu Ísland.is þar sem hægt er að koma tilkynningu til sóttvarnalæknis um matarbornar sýkingar.
Þorrablótnefnd Þorlákshafnar hefur gert það sama.
Í tilkynningu frá nefndinni segir að málið sé tekið mjög alvarlega og að þegar sé farið að skoða orsakir í samstarfi við viðeigandi aðila.
Árni Bergþór Hafdal Bjarnason, eigandi Veisluþjónustu Suðurlands, sagði í samtali við mbl.is í gær að fyrirtækið hefði góða og skráða verkferla og því væri auðvelt að rekja það ef mistök hefðu orðið í eldun og framreiðslu.
Hann sagðist hafa frétt af veikindum gestanna á blóti Hvatar þegar hann var að bera fram mat á blótinu í Þorlákshöfn á laugardag. Hann kvaðst hafa upplýst þá sem stóðu að blótinu um málið.
Þá benti Árni á að magapest væri að ganga og að enn lægi ekkert fyrir um það af hvaða tagi veikindin væru. Hann sagði að beðið væri eftir niðurstöðum úr sýnum.
„Þetta verður bara krufið til mergjar og ef það er einhver brestur hjá okkur, þá viðurkennum við það þegar að því kemur og lögum þá verkferla,“ sagði Árni í samtali við mbl.is í gær.
Þá sagði hann að maturinn á þorrablóti Þorlákshafnar hefði að miklu leyti verið sá sami og á þorrablóti Hvatar, og undirbúinn með sama hætti.
Því væri um að ræða ágætt samanburðarpróf á það hvort eitthvað hefði verið að matnum. Í gær hafði hann ekki fengið neinar tilkynningar um veikindi.
„Eina vopnið gegn svona er algjört gagnsæi og ef það er raunverulega einhver brestur hjá okkur þá mun heilbrigðiseftirlitið komast að því og við munum laga verkferla í samræmi við það,“ sagði Árni.
Veistu meira? Sendu okkur ábendingu á frettir@mbl.is