Veðurstofan kynnir gottvedur.is

Jóhann Páll og Hildigunnur opnuðu gottvedur.is í skítaveðri í dag.
Jóhann Páll og Hildigunnur opnuðu gottvedur.is í skítaveðri í dag. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands kynnir í dag fyrsta hlutann af nýjum vef Veðurstofunnar. Nýja vefinn er að finna á slóðinni gottvedur.is. 

Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að gottvedur.is sé fyrsta skrefið í umfangsmiklu verkefni sem snýr að endurnýjun á vefnum og öllu tækniumhverfi hans. 

Segir þar enn fremur að vefurinn sé enn í þróun. Þegar endurnýjun á vefnum lýkur munu nýju veðursíðurnar færast yfir á vefslóðina vedur.is.

Þrátt fyrir hina nýju, tímabundnu, vefslóð virðist veðurspáin fyrir næstu daga vera jafn slæm og á gamla vefnum vedur.is.

Vefurinn opnaður í íslensku vetrarveðri

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra setti nýjan vef í loftið í dag ásamt Hildigunni H.H. Thorsteinsson, forstjóra Veðurstofu Íslands. 

Í þessum fyrsta áfanga er lögð áhersla á upplýsingar sem flestir sækja daglega, en það eru veðurspár fyrir tiltekinn stað. Fyrir utan bætta framsetningu á staðarspám hefur stöðum sem hægt er að fletta upp til að fá veðurspá verið fjölgað verulega og smám saman mun þeim stöðum fjölga enn frekar.

„Það er mér sérstök ánægja að fá að opna nýjan vef Veðurstofu Íslands. Þessi fyrsti áfangi að endurbættri heimasíðu er stórt skref fram á við í aðgengi að grundvallargögnum og upplýsingum um veður og náttúröfl. Vefurinn mun koma að gagni í daglegu lífi fólks og nýtast sem tæki til að safna og miðla upplýsingum um veðurfar. Það er viðeigandi að opna vefinn í íslensku vetrarveðri,“ er haft eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þegar hann opnaði nýjan vef Veðurstofunnar í dag.

Svona lítur viðmótið á gottvedur.is.
Svona lítur viðmótið á gottvedur.is. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Toppurinn á ísjakanum

Eftir Hildigunni er haft að það sem birtist í dag sé toppurinn á ísjakanum í algjörri endurnýjun á vefumhverfinu. Segir hún mestu breytingarnar sem notendur taki eftir vera sennilega þær að miklu betra er að nota nýja vefinn. 

„Núverandi vefur hefur þjónað okkur dyggilega í næstum 20 ár og því eru þetta mikil tímamót í dag,“ er enn fremur haft eftir henni. „Það að vefurinn hafi dugað nánast óbreyttur þetta lengi er til marks um gæði hans á sínum tíma, en engu að síður vorum við komin í tækniskuld með vefinn og upplýsingatækniumhverfið sem tengist honum,“ er haft eftir Hildigunni.

Segir í tilkynningunni að verkefnið sé verulega umfangsmikið og að Veðurstofan hafi þegar fjárfest um 250 milljónum króna í verkefnið. Reiknað er með því að við bætist um 100 milljónir króna til viðbótar á næstu árum. 

„Við gerum miklar kröfur til rekstraröryggis, uppitíma og að vefurinn þoli mikið álag, fyrir utan það að framsetning á upplýsingum sé skýr, vefurinn notendavænn og komi til með að þjónusta okkar notendur enn betur en eldri útgáfan gerir í dag,“ er haft eftir Hildigunni.

Í vinnslu síðan 2022

Vinnan við nýjan vef Veðurstofunnar hófst formlega með útboði á vegum Ríkiskaupa í byrjun árs 2022 þar sem Origo varð hlutskarpast.

„Við rekum vef sem er vinsæll og samfélagslega mikilvægur og honum fylgir hátt tæknilegt flækjustig. Við viljum vanda til verka og fengum til samstarfs öflugt teymi frá Origo sem hefur staðið undir þeim kröfum sem við gerum hvað varðar hönnun, notendaviðmót og tæknilegar lausnir fyrir vefinn en margar af þeim lausnum eru mjög sértækar,“ er haft eftir Hildigunni

„Það hefur verið bæði áhugavert og ánægjulegt fyrir Origo að fá að taka þátt í þessu mikilvæga og umfangsmikla verkefni með starfsfólki Veðurstofunnar,“ er haft eftir Ara Daníelssyni, forstjóra Origo í sömu tilkynningu. 

„Við höfum nálgast verkefnið af metnaði og finnum til ábyrgðar, enda er hér um að ræða eina af mikilvægum öryggisinnviðum samfélagsins. Fjölmargir sérfræðingar okkar hafa komið að þessari vinnu á síðustu misserum , s.s. á sviði hönnunar og notendaviðmóts, gagnavinnslu, skýjainnviða, og kerfisreksturs og öryggismála,“ er enn fremur haft eftir honum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert