Búið að opna veginn um Öxnadalsheiði

Frá Öxnadalsheiði.
Frá Öxnadalsheiði. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Vegurinn um Öxnadalsheiði hefur verið opnaður að nýju en honum var lokað í gærkvöld vegna óveðurs.

Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að búið sé að opna veginn en þar er hálka og skafrenningur.

Veginum um Holtavörðuheiði var lokað í gærkvöld en búið að opna veginn á nýjan leik. Varað er við hálku á veginum.

Þá hefur vegurinn um Kleifaheiði verið opnaður en þar er einbreitt á köflum og sömu sögu er að segja um Súðavíkurhlíð. Vegurinn þar hefur verið opnaður að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert