Frumvarp um Hvammsvirkjun afgreitt úr ríkisstjórn

Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra.
Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra. mbl.is/Eyþór

Nýtt frumvarp um Hvammsvirkjun var afgreitt úr ríkisstjórn nú í morgun á ríkisstjórnarfundi. Þetta staðfesti Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, í samtali við mbl.is beint eftir fundinn.

Jóhann hafði boðað frumvarp sem myndi greiða fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um ógildingu virkjunarleyfis Landsvirkjunar í síðasta mánuði.

Eftir dóminn boðaði Jóhann einnig frekari lagabreytingar til að einfalda leyfisveitingakerfi vegna vatnsaflsvirkjana og gera það skilvirkara.

Í gær var þingmálalisti ríkisstjórnarinnar kynntur og kom þar meðal annars fram að eitt þeirra frumvarpa sem væri fyrst á dagskrá ætti að eyða óvissu um Hvammsvirkjun og aðrar mikilvægar framkvæmdir. 

Meðal annars á að koma á orkuforgangi fyrir almenning ásamt um­fangs­miklu ein­föld­un­ar­frum­varpi til að hraða og sam­ræma málsmeðferð í leyf­is­veit­ing­um, án þess að slá af kröf­um um um­hverf­is­vernd og al­manna­sam­ráð, eins og það var orðað í þingmálaskránni.

Þá verði lögð fram ramm­a­áætl­un þar sem virkj­un­ar­kost­ir verða flokkaðir í vernd­ar­flokk eða nýt­ing­ar­flokk sam­kvæmt til­lög­um verk­efna­stjórn­ar ramm­a­áætl­un­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert