Liðsmenn Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, afhentu Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, 90 kröfur um hvernig megi betrumbæta háskólasamfélagið í tilefni af 90 ára afmæli félagsins í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vöku en þar segir að kröfurnar séu fjölbreyttar.
Meðal annars er krafist úrbóta á Menntasjóði námsmanna með innleiðingu tvískipts frítekjumarks auk almennrar hækkunar á grunnframfærslu. Þá er einnig lagt til að veitingahúsið Grillið, sem var á efstu hæð á Hótel Sögu, verði nýtt í veitingahús fyrir stúdenta.
„Mikill uppgangur hefur verið hjá Vöku síðastliðin misseri. Félagið hefur á örfáum árum farið frá því að vera með einn fulltrúa af sautján í Stúdentaráði yfir í að vera með meirihluta fulltrúa, en Vaka hlaut níu menn kjörna í Stúdentaráðskosningunum í mars síðastliðnum,“ segir í tilkynningunni.