Mikið eldingaveður var á höfuðborgarsvæðinu fyrr í kvöld og gekk á ýmsu.
Hér að ofan má sjá myndskeið sem Hákon Örn Helgason tók þegar eldingu laust niður í turn Hallgrímskirkju í Reykjavík, en fleiri myndskeið af þrumuveðrinu hafa einnig borist.
Hér má sjá kort á vef Veðurstofunnar af eldingum sem hafa slegið niður undanfarinn sólarhring.