Þau munu svara Kristrúnu í kvöld

Kristrún Frostadóttir for­sæt­is­ráðherra mun flyt­ja stefnuræðu rík­is­stjórn­ar sinn­ar á Alþingi …
Kristrún Frostadóttir for­sæt­is­ráðherra mun flyt­ja stefnuræðu rík­is­stjórn­ar sinn­ar á Alþingi í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristrún Frostadóttir for­sæt­is­ráðherra flyt­ur stefnuræðu rík­is­stjórn­ar sinn­ar á Alþingi í kvöld. Fara fram umræður um hana í kjöl­farið. Stefnuræðan hefst klukk­an 19.40.

Umræðurnar munu skiptast í tvær umferðir. Forsætisráðherra hefur tólf mínútur til framsögu en í fyrri og seinni umferð hafa aðrir þingflokkar sex mínútur til að flytja mál sitt, að því er segir í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis. 

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í fyrri umferð og Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í seinni umferð.

Tveir frá hverjum þingflokki

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins verða Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 1. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Hildur Sverrisdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í seinni umferð.

Fyrir Viðreisn tala Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í fyrri umferð og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í seinni umferð.

Ræðumenn Miðflokksins verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og Sigríður Á. Andersen, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.

Ræðumenn Flokks fólksins verða Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, í fyrri umferð og Ragnar Þór Ingólfsson, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í fyrri umferð og Stefán Vagn Stefánsson, 5. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert