Guðbjörg Ingunn aðstoðar Ásthildi Lóu

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir er nýr aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra.
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir er nýr aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra.

Þetta segir í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.

Kemur þar fram að Guðbjörg hafi verið ráðin í stöðu sérfræðings í ráðuneytinu í byrjun árs en mun gegn stöðu aðstoðarmanns frá og með deginum í dag samkvæmt ákvörðun ráðherra.

Eiginkona Ragnars Þórs

Guðbjörg er eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar, flokksbróður Ásthildar Lóu. Ragnar er þingmaður og oddviti Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Hún útskrifaðist sem grunnskólakennari árið 2004 frá Kennaraháskóla Íslands og er með MA-gráðu í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf frá Háskóla Íslands.

Í tilkynningunni kemur fram að hún hafi fjölbreytta reynslu á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Hún hafi starfað sem kennari við Sæmundarskóla, Lágafellsskóla og Árbæjarskóla auk þess að hafa starfað sem deildarstjóri á leikskólanum Hlaðhamri.

Íþróttatengill og málstjóri

„Síðustu ár hefur hún starfað í Suðurmiðstöð Reykjavíkur sem íþrótta- og samskiptatengill og sem verkefnastjóri Velkominn í hverfið, sem hefur það að markmiði að styðja sérstaklega við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna.

Guðbjörg býr yfir mikilli reynslu af farsældarlögunum og hefur bæði gegnt hlutverki tengiliðar og málstjóra frá upphafi innleiðingar þeirra. Þá hefur hún líka verið teymis- og verkefnastjóri í SkaHm sem er skammtímadvöl fyrir börn með fjölþættan vanda,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert